Við notum vafrakökur til að greina upplýsingar um notkun vefsíðunnar til að bæta efni og birta markaðsefni. Nánar um vafrakökur LEYFA VAFRAKÖKUR
Eyjafjarðará

Sjóbleikja og sjóbirtingur í hæsta gæðaflokki


Veiðireglur

Á ósasvæðinu og svæðum 0 og 1 er heimilt að veiða með flugu og spón.
Á svæðum 2, 3, 4 og 5 er einungis leyfilegt að veiða á flugu, með einum eða tveimur krókum, með flugustöng og fluguhjóli. (athugið að svæði 2 og 3 hafa einnig verið gerð að fluguveiðisvæði).

Daglegur veiðitími:

1. apríl-15. maí er veitt kl. 8-14 og 15-21.
21. júní-10. ágúst er veitt  kl. 7-13 og 16-22.
11. ágúst-15. sept er veitt kl. 7-13 og 15-21.
16. sept-10. okt er veitt kl. 8-13 og 15-20.

Öll maðkveiði og önnur beituveiði er stranglega bönnuð á öllum svæðum árinnar.

Skylda er að sleppa ÖLLUM veiddum bleikjum.

Heimilt er að hirða 2 urriða/sjóbirtinga undir 60cm.á stöng á öllum svæðum, utan vorveiðitíma.

Í vorveiðinni frá 1. apríl til 15. maí á svæðum 0, 1, 2, 3 og 4, ber að sleppa öllum fiski.
ATH! Í vorveiðinni frá 1.apríl til 15.maí er einungis heimilt að veiða á flugu á svæðum 0, 1, 2, 3 og 4.

Veiði í öllum þverám Eyjafjarðarár er nú heimil á ný nema að áfram verður óheimilt að veiða í Torfufellsá fyrir ofan brú. Ekki verður heimilt að veiða á svæði 5 fyrir framan merki ofan Tjaldbakka.


Veiðihús

Ekkert veiðihús er við ána en víða má finna gistingu í Eyjafirði.


Annað

Veiðimenn eru beðnir um að fylgja slóðum, sem merktir eru „Veiðivegur“ og ekki keyra á öðrum stöðum að ánni og virða lokanamerkingar þar sem það á við. Lokið hliðum og virðið umhverfið.


Skilmálar

Skylda er að skrá allan veiddan fisk í rafrænu veiðibókina okkar á www.eyjafjardara.is
Að öðru leyti gilda skilmálar um kaup sem lesa má í vefsölunni hjá okkur.



Keyrt á vefkerfi veidileyfi.is © 2026.